Fjallabrauð
Stelpurnar í 6. bekk í útinámi og leikni bökuðu fjallabrauð á pönnu. Í útieldun reynist stundum erfitt að tempra hitann og gengur lítið að hækka / lækka hann en þetta er það sem fólk bjó við. Uppskrift af fjallabrauði er að finna hér
Stelpurnar í 6. bekk í útinámi og leikni bökuðu fjallabrauð á pönnu. Í útieldun reynist stundum erfitt að tempra hitann og gengur lítið að hækka / lækka hann en þetta er það sem fólk bjó við. Uppskrift af fjallabrauði er að finna hér
Strákarnir í 7. bekk í útinámi og leikni gerðu stuttan „trailer“ á Ipadinn í appinu IMovie og poppuðu úti. Hver veit nema þarna séu kvikmyndagerðamenn og leikarar framtíðarinnar !
Húsnæðið lætur ekki mikið yfir sér en ilmurinn úr HP kökugerð var góður þegar 6. og 7. bekkur í útinámi og leikni mættu til að kynna sér fyrirtækið og starfsemina sem þar er. Grímur Arnarson og Andrea Ýr dóttir hans leiddu okkur í gegnum starfsemina og sögu fyrirtækisins. Síðan var boðið upp á kanilsnúðar, kleinur
Útinám og leikni heimsækir HP kökugerð Lesa Meira>>
Strákarnir í 7. bekk í Útinám og leikni heimsóttu Bílverk BÁ og kynntu sér starfsemi og störf þeirra sem vinna þar. Þar var margt áhugavert að sjá eins myndirnar segja til um. Við þökkum Bílverk BÁ kærlega fyrir góðar móttökur.
Útinám og leikni heimsækir Bílverk BÁ Lesa Meira>>
… og gleðin skein úr hverju andliti
Í dag matreiddu strákarnir sushi Lesa Meira>>
Það er gaman að leika sér í læknum á skólalóðinni á góðum rigningardögum. 4. bekkur í útinámi og leikni gerði sér pappírsbáta og nýttu lækinn sér til skemmtunar. Í læknum eru sker (grjót), grynningar (smásteinar) sem bátarnir þurftu að sigla framhjá. Drengirnir skemmtu sér konunglega eins og sjá má.
Pappírsbátarigningin Lesa Meira>>
Síðast liðinn fimmtudag heimsóttu nemendur í Starfalæk Ökuskólann þar sem Þráinn Elíasson tók á móti þeim og fór yfir helstu atriði varðandi ökunám, umferð og umferðaröryggi. Heimsóknin var bæði fróðleg og áhugaverð. Við þökkum honum kærlega fyrir góðar móttökur.
Starfalækur heimsækir Ökuskólann Lesa Meira>>
Nemendur í Starfalæk heimsóttu Guðnabakarí á dögunum. Óskar Guðnasson, bakari tók á móti nemendum og fræddi þau um starfið, starfsemina og námið sem liggur að bakaraiðn. Við þökkum Óskari og starfsfólki Guðnabakarís kærlega fyrir góðar móttökur.
Guðnabakarí heimsótt Lesa Meira>>
Í síðustu viku heimsóttu nemendur í Starfalæk Brunavarnir Árnessýslu þar sem Kristján Einarsson slökkviliðsstjóri tók á móti þeim. Kristján ræddi við nemendur m.a. um starfsemi stofnunarinnar, mannauðinn, starfið og búnaðinn. Heimsóknin var mjög áhugaverð og voru nemendur ánægðir með heimsóknina sem lauk með heimkeyrslu á mannskapsbíl Brunavarna Árnessýslu. Við þökkum Kristjáni og starfsfólki Brunavarna kærlega fyrir góðar móttökur.
Starfalækur heimsækir Brunavarnir Árnessýslu Lesa Meira>>
Vegna haustþings kennara á Suðurlandi verður starfsdagur í Sunnulækjarskóla föstudaginn 2. október n.k. og því mæta nemendur ekki til skóla þann dag. Þingið hefst e.h. fimmtudaginn 1. október og því lýkur kennslu þann dag sem hér segir: 1. – 4. bekkur: kennslu lýkur samkvæmt stundaskrá, engin breyting. 5. – 7. bekkur: kennslu lýkur kl 13:00
Haustþing KS, starfsdagur Lesa Meira>>