Hermann

Setrinu færður iPad að gjöf

Setrinu í Sunnulækjarskóla barst höfðingleg gjöf í vikunni.  Gjöfin sem er iPad er frá fyrirtæki á Selfossi og erum við afar þakklát fyrir hana. Ipadinn mun nýtast mjög vel í skólastarfi Setursins sem námstæki og til tjáskiptaþjálfunar. Nokkrir nemendur eru þegar farnir að koma með eigin iPad og spjaldtölvur í skólann.   Nú á Setrið sinn eigin iPad gefur það okkur möguleika á að […]

Setrinu færður iPad að gjöf Lesa Meira>>

Vettvangsferð

6. MSG fór í vettvangsferð í gær í tengslum við námsefnið Líkríkið í fersku vatni. Nemendur hjóluðu að andatjörninni á Gesthúsasvæðinu vopnaðir háfum og krukkum. Afraksturinn varð fullar krukkur af vatnsköttum, vatnabobbum, brunnklukkum og 2 hornsíli sem verða rannsökuð frekar næstu daga.

Vettvangsferð Lesa Meira>>

Námsefniskynningar

Kynningar á skólastarfinu fyrir foreldra/forráðamenn nemenda fara fram sem hér segir; 1. bekkur þriðjudaginn 4.sept. kl. 17:30 2. bekkur miðvikudaginn 12. sept. kl.17:00 3. bekkur mánudaginn 10.sept. kl.17:30 4. bekkur miðvikudaginn 12.sept. kl.18:00 5. bekkur  miðvikudaginn 12. sept. kl.16:30 6. bekkur fimmtudaginn 6 sept. kl. 17:00 7. bekkur þriðjudaginn 11. sept. kl. 17:00 8. bekkur þriðjudaginn 11.

Námsefniskynningar Lesa Meira>>

Skólasetning

Sunnulækjarskóli verður settur miðvikudaginn 22. ágúst. Nemendur sem fæddir eru 2002 til 2006 og fara í 1. til 5. bekk mæta kl 9:00 Nemendur sem fæddir eru 1997 til 2001 og fara í 6. til 10. bekk mæta kl 11:00 Að loknu stuttu ávarpi skólastjóra munu nemendur hitta kennara sína og fá upplýsingar og gögn. Við

Skólasetning Lesa Meira>>

Verðlaun fyrir lokaverkefni í Tóbakslaus bekkur

7. GG í Sunnulækjarskóla var einn af níu hópum sem fengu verðlaun í keppninni Tóbakslaus bekkur. Keppnin var haldin meðal 7. og 8. bekkja í öllum grunnskólum landsins. Alls tóku 250 bekkir þátt í samkeppninni. Til að eiga möguleika á fyrstu verðlaunum þurftu bekkirnir að senda inn áhugavert efni tengt tóbaksvörnum og er verðlaunaupphæðin 5.000 krónur

Verðlaun fyrir lokaverkefni í Tóbakslaus bekkur Lesa Meira>>