Stóra upplestrarkeppnin
Föstudaginn 4. apríl fór úrslitakeppni Stóru upplestrarkeppninnar á Suðurlandi fram í Þorlákshöfn. Mikill metnaður er lagður í keppnina og óhætt að segja að nemendur séu sífellt að mæta betur og betur undirbúnir. Allir keppendur stóðu sig með prýði og voru skólum sínum til sóma. Fyrir hönd Sunnulækjarskóla kepptu Aldís Elva Róbertsdóttir, Guðjón Leó Tyrfingsson, Haukur Hjartarson og Veigar Atli Magnússon. […]
Litla upplestrarkeppnin
Í haust var ákveðið að setja Litlu upplestrarkeppnina fyrir 4. bekk af stað hér í Árborg og nærsveitarfélögum. Litla upplestrarkeppnin hófst í Hafnarfirði haustið 2010 og byggir á markmiðum Stóru upplestrarkeppninnar sem haldin er reglulega í 7. bekk. Meginmarkmið keppninnar er að nemendur flytji íslenskt mál sjálfum sér og öðrum til ánægju og að þeir […]
Sunnulækjarskóli á verðlaunapall
Í gær tók Sunnulækjarskóli þátt í skólahreysti í fimmta sinn. Okkur hefur aldrei gengið eins vel og nú náði lið skólans besta árangri hingað til og hreppti 3. sæti í Suðurlandsriðlinum. Krakkarnir stóðu sig frábærlega og voru sér og skólanum til mikils sóma. Sama er að segja um hið frábæra stuðningslið sem fylgdi liðinu. Liðið skipuðu […]
Vetrarfrí 20. og 21. mars
Vetrarfrí verður í Sunnulækjarskóla fimmtudag og föstudag í þessari viku, 20. og 21. mars.Allar deildir skólans, þar með talið skólavsitun og skrifstofa eru lokaðar í vetrarfríi.Skóli hefst að nýju samkvæmt stundaskrá mánudaginn 24. mars.
Alltaf eitthvað óvænt og skemmtilegt
Í stórum skóla gerast margir skemmtilegir hlutir dag hvern. Í dag var alveg sérstaklega skemmtilegt þegar nemendi í 2. bekk, Oliver Jan, bauð skólasystkinum sínum upp á óvænta básúnutónleika. Við þökkum Oliver fyrir hans framlag til að gera skólann okkar skemmtilegan.