Fyrirlestur um netnotkun
Þriðjudaginn 25. febrúar næstkomandi stendur forvarnarteymi Árborgar, grunnskólarnir á Selfossi og foreldrafélög grunnskólanna fyrir fræðslufyrirlestri um internet- og nýmiðlanotkun í samstarfi við samtökin SAFT og Heimili og Skóla. Fyrirlesturinn verður í Fjallasal og hefst kl 20:00. Nánari upplýsingar má finna hér: SAFT_fyrirlestur
Skapandi starf í 2. bekk
Föstudagar eru sköpunardagar hjá 2. bekk. Þá er nýttur efniviður sem til fellur hér og þar og kostar ekkert. Áherslan er á ferlið, að finna út hvernig hægt er að bjarga sér og hvað hægt er að nota í staðinn fyrir það sem ekki er til. Útkoman er margskonar og skemmtileg, ýmist hengd upp eða […]
Fjölmiðlaheimsókn
Í dag fór 7. MSG í fjölmiðlaheimsókn með sama hætti og systurbekkurinn 7. ÁT gerði fyrr í vikunni. Nemendur heimsóttu Útvarp Suðurland, Dagskrána og Sunnlenska fréttavefinn. Nemendur fengu frábærara móttökur og þakkar skólinn fjölmiðlunum fyrir stuðning þeirra við starf skólans.
Iðunn og eplin
Nemendur í 2. bekk hafa verið að kynna sér goðafræðina. Þeir unnu verkefni í tengslum við söguna um Iðunni og eplin. Að verkefninu loknu héldu þau kynningu fyrir skólastjórnendur þar sem sagan var sögð á myndrænan hátt og spjöldum haldið á lofti. Allir stóðu sig vel og voru ánægðir að sýningu lokinni.
Umhverfismennt í Sunnulækjarskóla
Krakkarnir í 3. bekk í umhverfismennt fóru í göngutúr í kringum skólann okkar vopnuð plastpokum með það markmið að tína upp rusl. Það kom okkur mjög á óvart hversu mikið rusl við fundum. Við fundum líka marga staka vettlinga. Nemendur í 3. bekk