Lestarhestar í 3.bekk
Nemendur í 3. bekk hafa verið afar duglegir að lesa um þessar mundir, en þeir taka nú þátt í sérstöku lestarátaki sem stendur yfir í 6 vikur á miðönn.Markmið þess er:-að þjálfa áheyrilegan lestur-að efla lesskilning og lestarleikni-að auka lestarlöngun nemandans-að bæta skrift og setningamyndun-að kynna nemendum málfræði í texta
Þorrinn boðinn velkominn
Í morgun var söngstund í Fjallasal í tilefni bóndadags og upphafs Þorra. Allir nemendur skólans hófu skóladaginn með því að setjast í Þingbrekkuna og syngja saman nokkur lög. Nemendur úr 5. bekk sáu um forsöng ásamt hljóðfæraleikurum og söngfuglum úr starfsliði skólans.
Val hjá 8.-10.bekk
Í næstu viku fer nýtt val á stað. Nemendur skoða nýtt val og ræða það við umsj.kennara.
Bílaþema hjá 2. bekk
Í vetur höfum við í 2. bekk verið að kynna okkur bíla og allt sem að þeim snýr.
Stjörnuskoðun í 5. bekk
5. bekkur fór út í stjörnuskoðun í morgun.
Kveikjan var stjörnukort sem nemendur fengu gefins frá stjörnuskoðunarfélaginu. Við fórum út vopnuð kíkjum og vasaljósum, gengum útfyrir bæinn þar sem minni ljósmengun var og lögðumst í snjóinn.
Svo reyndum við að finna stjörnumerki og greina þau.