Forvarnardagurinn 5. október.
Forvarnardagurinn var hafður í heiðri í skólanum þann 5. október og að venju eru það 9.bekkirnir sem vinna verkefni um forvarnir gegn fíkniefnum. Einnig fengu þau kynningu á starfsemi íþrótta- og æskulýðsfélaga í Árborg.
Lestrardagbækur að gjöf.
Í síðust viku fengum við góða heimsókn í 7. bekkina þegar þær Elín og Sirrý komu frá FSu að gefa nemendum lestrardagbækur. Þetta kemur sér mjög vel þar sem nú er að fara af stað lestrarátak hjá bekkjunum.
Takk kærlega fyrir okkur.
Starfsdagur 7. október
Vegna haustþings kennara á Suðurlandi verður starfsdagur í Sunnulækjarskóla föstudaginn 7. október n.k. og því mæta nemendur ekki til skóla þann dag. Þingið hefst e.h. fimmtudaginn 6. október og því lýkur kennslu þann dag sem hér segir:
1. – 4. bekkur: kennslu lýkur kl 12:50 og því er engin breyting á skóladegi.
5. – 7. bekkur: kennslu lýkur kl 13:10
8. – 10. bekkur: kennslu lýkur kl 13:10
Tenglafundur foreldrafélagsins
Frekari upplýsingar um starf foreldrafélagsins og hvað er á döfinni má lesa á upplýsingavef foreldrafélagsins.
Nemendur í 5.bekk
Nemendur fara í gönguferð.