Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Sunnulækjarskóli í jólafötin

By birgir | 26. nóvember 2010

Í dag var skreytingadagur í Sunnulækjarskóla.  Dagurinn hófst með sameiginlegri söngstund í Fjallasal en síðan gengu nemendur til þess verks að búa skólann í jólabúning. 

Allt jólaskrautið sem safnast hefur frá fyrri árum var dregið fram og því komið fyrir á þeim stöðum sem vera ber auk þess sem mikið var föndrað og framleitt af nýju skrauti.

Skreytingardagur

By birgir | 25. nóvember 2010

Föstudaginn 26. nóvember verður skreytingadagur. Þá mun öll hefðbundin kennsla (þ.m.t. íþróttir og verkgreinar) verða lögð til hliðar. Nemendur vinna á stöðvum en í boði verður m.a. föndurstöð, spila- og leikjastöð, íþróttastöð og stílistastöð, en nemendur á þeirri stöð bera ábyrgð á að skreyta skólann þennan dag.


 


 

Hádegistónleikar

By birgir | 10. nóvember 2010

Hin árlega söngkeppni FSu verður haldin næstkomandi fimmtudagskvöld í Iðu.  Af því tilefni komu þrír nemendur FSu í heimsókn í Sunnulækjarskóla, fluttu nokkur lög og kynntu keppnina.

Heimsókn frá vinaþjóðum

By birgir | 4. nóvember 2010

Í morgun fengu nemendur í 1., 2., 5. og 6. bekk heimsóknir frá vinaþjóðum okkar í austri og vestri, Færeyjum og Grænlandi.

Hár og förðun

By birgir | 1. nóvember 2010

Nemendum Sunnulækjarskóla gefst kostur á að læra um hár og förðun í vali. S.l. fimmtudag fór hópurinn í heimsókn á hársnyrtistofuna Krítik.