Stóra upplestrarkeppnin í Árborg
Stóra upplestrarkeppnin í Árborg 2022 var haldin með hátíðlegu yfirbragði við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri fimmtudaginn 24. mars síðastliðinn. Stóra upplestrarkeppnin hefur átt fastan sess í íslensku skólastarfi um land allt frá skólaárinu 1996-1997. Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn eru stofnendur keppninnar og hafa haldið utan um skipulagið öll þessi ár en […]
Kór Sunnulækjarskóla
Kór Sunnulækjarskóla hélt sína fyrstu tónleika á miðvikudag sl. fyrir fullu húsi aðstandenda. Kórfélagar stóðu sig mjög vel og var gerður góður rómur að song og ekki síst sönggleði kórsins. Tónlistin var fjölbreytt og spannaði allt frá hefðbundnum barna- og kórlögum til Pink Floyd og KK svo eitthvað sé nefnt. Kórinn hyggur á aðra tónleika […]
Innanhúshátíð í upplestri í 7. bekk
Haldin var innanhúshátíð í upplestri í 7. bekk 18. mars sl. Tólf nemendur tóku þátt í henni en áður höfðu allir nemendur 7. bekkjar tekið þátt í undirbúningi og bekkjarkeppnum. Allir nemendur árgangsins hafa verið að æfa sig í upplestri þar sem horft er til þess að vekja athygli og áhuga á vönduðum upplestri og […]
Sjónlistadagurinn 2022
Það var haldið uppá Sjónlistadaginn 2022 í Sunnulækjarskóla með því að dreifa væntumþykju, kærleika og von. Skólinn var skreyttur með hjörtum af öllum stærðum og gerðum.
Myndmenntaval á Listasafni Árnesinga
Nemendur í myndmenntavali fóru í menningarferð til Hveragerðis mánudaginn 7. mars. Fóru þau á myndlistarsýningar á Listasafni Árnesinga Hveragerði. Nemendur fengu fræðandi leiðsögn um fjórar myndlistarsýningar, en þær voru: Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir – Þú ert kveikjan / You are the Input Magnús Helgason – Rólon / Roll on Þórdís Erla Zoega – Hringrás / Routine […]