Fréttasafn
Fréttir frá Sunnulækjarskóla
Jólabingó 1. bekkjar
4. desember héldu sex ára nemendur jólabingó sér og foreldrum sínum til skemmtunar. Góð mæting var á bingóið og sáu foreldrar um allt skipulag og veitingar fyrir bingógesti. Setið var á hverjum stól í Fjallasal og fóru allir glaðir heim […]
Smákökubakstur í Sunnulækjarskóla
Það er árlegur viðburður að nemendur í 8.-10. bekk skólans mæta utan skólatíma og baka smákökur undir stjórn heimilisfræðikennara með aðstoð sjálfboðaliða úr hópi foreldra. Afrakstur bakstursins er svo gefinn víðsvegar um bæinn. Í ár fóru nemendur og færðu heimilisfólki […]
Skreytingardagur 30. nóvember
Senn líður að jólum og nú förum við að klæða skólann okkar í jólabúning. Föstudaginn 30. nóvember verður skreytingadagur. Þá mun öll hefðbundin kennsla (þ.m.t. íþróttir og verkgreinar) verða lögð til hliðar. Nemendur vinna í margskonar hópum við fjölbreytt verkefni. […]
Skreytingadagur í Sunnulækjarskóla
Í dag tókum við svolítið forskot á aðventuna og skreyttum skólann hátt og lágt. Við byrjuðum daginn með söngstund. Í söngstundum nýtum við vinatengsl eldri og yngri nemenda þannig að þeir eldri sækja þau yngri og setjast með þeim fram […]
Samráðsfundur um nýja skólastefnu Árborgar
Opinn samráðs- og stefnumótunarfundur um nýja skólastefnu Árborgar verður haldinn í Sunnulækjarskóla miðvikudaginn 28. nóvember 2012 kl. 17-18:30.
Heimsókn frá Sjóminjasafninu
Í gær fékk 3. bekkur heimsókn frá Sjóminjasafninu á Eyrarbakka. Linda Ásdísardóttir kom og kynnti líf verbúðarmanna fyrir um 150 árum. Hún klæddi sig upp einsog sjómaður í þá daga og sýndi okkur alls kyns áhöld sem notuð voru. Meðal […]
Lögregluheimsókn
Nemendur úr 9. og 10. bekk heimsóttu Lögreglustöðina í dag og fengu flotta kynningu vakthafandi lögreglumanna. Heimsóknin er liður í verkefni nemenda í Starfalæk sem lýtur að því að kynna sér mismunandi störf í nærumhverfinu.
Opinn samráðs- og stefnumótunarfundur um nýja skólastefnu Árborgar
Opinn samráðs- og stefnumótunarfundur um nýja skólastefnu Árborgar verður haldinn í Sunnulækjarskóla miðvikudaginn 28. nóvember 2012 kl. 17-18:30. Í upphafi fundar verður stutt kynning á drögum að nýrri skólastefnu og síðan unnið í umræðuhópum með þau leiðarljós og markmið […]
16. nóvember, dagur íslenskar tungu
Í Sunnulækjarskóla var margt á döfinni í tilefni af degi íslenskar tungu 16. nóvember. Sem dæmi má nefna að nemendur í 7. bekk lásu úr Ritsafni Jóns Sveinssonar um Nonna og Manna í Fjallasal og fóru einnig í heimsókn til […]
Foreldradagur 14. nóvember
Foreldrar og nemendur mæta í viðtöl miðvikudaginn 14. nóvember. Fundarboð með nákvæmri tímasetningu viðtala verður sent heim föstudaginn 9. nóvember. Nemendur mæta með foreldrum sínum í viðtölin en eru ekki í skólanum þann dag að öðru leyti. Skólavist er opin […]
Starfsdagur 12. nóvember
Mánudagurinn 12. nóvember, er starfsdagur í Sunnulækjarskóla. Þennan dag munu kennarar nota til að ganga frá námsmati haustannar. Nemendur mæta því ekki í skólann þann dag. Skólavist er opin en skrá þarf börn sérstaklega þennan dag.
8. nóvember – dagur gegn einelti
Í dag hófst vinabekkjaverkefni Sunnulækjarskóla. Vinabekkjaverkefnið er fólgið í því að allir nemendur skólans mynda vinatengsl milli einstakra nemenda í eldri og yngri bekkjum. Markmið verkefnisins er að nemendur á ólíkum aldri kynnist og að efla samkennd og virðingu meðal […]
