Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Útikennsla í heimilisfræði

By Hermann | 11. maí 2012

María Maronsdóttir heimilisfræðikennari hefur mikinn áhuga á því að vera með útikennslu í heimilisfræði og hefur sótt námsskeið í útieldun. Sunnulækjarskóli fékk í dag afhenta glæsilega útieldunargrind frá fimm nemendum skólans. Við þökkum Kötlu Sif, Ingu Jónu, Söru, Styrmi og Guðrúnu Ástu kærlega fyrir þessa gjöf sem afi þeirra Sigurður Grímsson smíðaði. Útieldunargrindin mun gefa […]

Uppskeruhátíð – markaður hjá 8.bekk

By Hermann | 9. maí 2012

Í vetur hafa krakkarnir í 8 bekk unnið að verkefninu “Markaðurinn”, samvinnuverkefni  í textíl og smíði, þar sem nemendur kynnast ferlinu frá hugmynd að framleiðslu vöru. Krakkarnir  hafa unnið hörðum höndum að framleiðslunni í sínu fyrirtæki og svo var afraksturinn boðinn til sölu á markaði í skólanum. Einnig settu krakkarnir upp kaffihús og seldu kaffi, […]

Nemendur Sunnulækjarskóla stóðu sig frábærlega í Skólaþríþraut FRÍ

By Hermann | 9. maí 2012

  Úrslitakeppni Skólaþríþrautar fór fram í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal, laugardaginn 5. maí. Sjö nemendur Sunnulækjarskóla höfðu unnið sér inn þátttökurétt eftir undankeppni í íþróttatímum. Sex nemendur mættu svo í höllina, Perla Sævarsdóttir, Jón Þór Sveinsson, Pétur Már Sigurðsson, Skúli Darri Skúlason og Valgarður Uni Arnarsson öll í 6. bekk, Alma Rún Franzdóttir í 7. bekk […]

Þorgrímur Þráinsson heimsækir 10. bekkina

By Hermann | 4. maí 2012

Þorgrímur Þráinsson rithöfundur heimsótti okkur í apríl og hélt fyrirlestur fyrir 10.bekkina sem bar yfirskriftina „Eltu drauminn þinn“.  Hann ræddi m.a. við þau um mikilvægi þess að setja sér markmið, hafa trú á sjálfum sér til að ná markmiðunum og skipuleggja sig í samræmi við það.   Þorgrímur náði vel til krakkanna og voru allir mjög […]

7 keppendur áfram í skólaþríþraut FRÍ

By Hermann | 25. apríl 2012

Sunnulækjarskóli tók þátt í undankeppni skólaþríþrautar FRÍ í vetur. Í skólaþríþraut er mældur árangur barna í 6. og 7. bekk í 100 m spretthlaupi, hástökki og kúluvarpi. 70 krakkar víðsvegar af landinu hafa verið valin í úrslitakeppnina sem fram fer í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal, laugardaginn 5. maí. Sunnulækjarskóli á 7 fulltrúa af báðum kynjum bæði […]