könnun fyrir nemendur í 3. bekk
Aðgangur að könnun SUNTAD-724-706
Gjöf frá foreldrum
Foreldrafélag Sunnulækjarskóla kom færandi hendi til okkar í vikunni og færði okkur veglegar gjafir. Gjafirnar að þessu sinni eru bæði inni- og útileikföng sem munu nýtast nemendum og kennurum við leiki og nám. Við þökkum foreldrum kærlega fyrir gjafirnar og þann hug sem þeim fylgir.
Alþjóðlegur dagur móður jarðar
Föstudaginn 22. apríl var alþjóðlegur dagur móður jarðar, en dagurinn hefur verið helgaður fræðslu um umhverfismál og er haldinn hátíðlegur víða um heim. Nemendur í 1. bekk hittu vinabekk sinn, 6. bekk í tilefni dagsins og tíndu saman rusl í nágrenni við skólann í frábæru veðri. Alls fylltust rúmlega 20 ruslapokar. Á meðfylgjandi myndum má […]
Starfsdagur 27. apríl
Þann 27. apríl n.k. verður haldinn sérstakur símenntunardagur í Sveitarfélaginu Árborg þar sem allir starfsmenn leik- og grunnskóla og Skólaþjónustu Árborgar munu taka þátt. Þennan dag verður því starfsdagur í Sunnulækjarskóla og nemendur sækja ekki skóla þann dag. Þar sem starfsfólk Skólavistunarinnar Hóla tekur einnig þátt í deginum verður skólavistunin lokuð á framangreindum starfsdegi og […]
Íþróttadagur í Sunnulækjarskóla
Íþróttadagur var í Sunnulækjarskóla í dag 20. apríl. Nemendur fóru í hópum um allan skóla og leystu fjölbreyttar þrautir. Í Baulu fór fram spennandi keppni í brennibolta milli hópa. Frábær dagur að baki þar sem námsbækurnar og hefðbundið skólastarf fengu frí en samstarf, samstaða, ýmiskonar íþróttir og hugaleikfimi voru viðfangsefnin ásamt GLEÐI, VINÁTTU og FRELSI. […]