Jólafrí
Kæru foreldra og nemendur Við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegar jóla og farsæls komandi árs. Skólastarf hefst að nýju þriðjudaginn 3. janúar 2017, samkvæmt stundaskrá. Jólakveðja, starfsfólk Sunnulækjarskóla
Jólapakkabingó Nemendafélags Sunnulækjarskóla fyrir 1.- 4. bekk
Þann 12. desember hélt nemendaráð Sunnulækjarskóla jólapakkabingó fyrir 1.-4. bekk. Mjög góð mæting var á bingóið en sá háttur var hafður á, að sá sem fékk bingó fékk að draga sér jólapakka úr poka. Vakti þetta mikla lukku og tókst þessi stund í alla staði vel.
Jólapakkabingó Nemendafélags Sunnulækjarskóla fyrir 1.- 4. bekk Lesa Meira>>
Kynning valáfanga
Miðvikudaginn 7. desember kynntu kennarar sem kenna valfög eftir áramót valáfangana fyrir nemendum. Kynningin fór fram í Fjallasal kl. 13:10 á valtíma nemenda. Áfangarnir sem eru 15 talsins eru bæði fjölbreyttir og innihaldsríkir og fylgdust nemendur af miklum áhuga með kynningunum. Eftirfarandi valáfangar voru kynntir: Stuttmyndagerð, Umferðafræði, Liðleiki & styrkur, Litun og prent, Útivist og hreyfing, Spilavinir, Nýsköpun, Klikkaðar kenningar & heimspeki,
Kynning valáfanga Lesa Meira>>
Afrakstur góðgerðardaga afhentur
Nemendur Sunnulækjarskóla á Selfossi afhentu Sjóðnum góða í morgun 635.973 krónur sem söfnuðust á góðgerðardögum í skólanum í síðustu viku. Á þemadögum í Sunnulæk framleiddu nemendur skólans reiðinnar ósköp af allskyns spennandi jólavarningi sem síðan var seldur gestum og gangandi á jólamarkaði föstudaginn 25. nóvember síðastliðinn. Allur ágóðinn af sölubásunum átti að renna óskiptur til
Afrakstur góðgerðardaga afhentur Lesa Meira>>
Þemadagar, 23., 24. og 25. nóv.
Góðgerðardagar í Sunnulækjarskóla Föstudaginn 25. nóvember verður mikið um að vera í Sunnulækjarskóla. Nemendur og starfsmenn skólans ákváðu að nota fyrirhugaða þemadaga til að efna til góðgerðardaga í Sunnulækjarskóla. Því munu nemendur láta hendur standa fram úr ermum og hefja framleiðslu á ýmsum söluvarningi dagana 23. og 24. nóvember sem verður svo til sölu á
Þemadagar, 23., 24. og 25. nóv. Lesa Meira>>
Góðgerðardagar í Sunnulækjarskóla
Vantar ykkur jólagjafir? Nú eru nemendur Sunnulækjarskóla búnir að framleiða reiðinnar ósköp af alls kyns spennandi varningi og munu opna fjölda sölubása í skólanum á morgun, föstudaginn 25. nóvember, kl. 11:00. Allur ágóði rennur til góðgerðamála í sveitarfélaginu. Börnin hafa staðið sig frábærlega og sýnt af sér áræðni, hugmyndaauðgi, þrek og þor og síðast en
Góðgerðardagar í Sunnulækjarskóla Lesa Meira>>
Vettvangsferðir valhópa
Þann 14. nóvember s.l. lögðu þrír af valhópum Sunnulækjarskóla í ferðalag til Reykjavíkur. Þetta voru valhóparnir Litun og prent, Textíl og Nýsköpun, samtals um 30 nemendur. Lagt var af stað árla morguns og farið með Strætó báðar leiðir. Hóparnir úr Litun og prent og Textíl heimsóttu bæði Tækniskólann og Listaháskóla Íslands. Markmið þeirra var að
Vettvangsferðir valhópa Lesa Meira>>
Heimsókn á skrifstofu stéttarfélaganna
Fyrr í þessum mánuði fóru nemendur í 10. bekk Sunnulækjarskóla í þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna á Suðurlandi. Þau kynntu sér þjónustu stéttarfélaganna og fengu gagnlegar upplýsingar um réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Eftir að kynningu lauk var boðið upp á pizzu og gos. Nemendum fannst margt merkilegt í heimsókninni og stéttarfélögunum þótti bæði fengur og mikil ánægja af heimsókn unga fólksins þar
Heimsókn á skrifstofu stéttarfélaganna Lesa Meira>>
Kakófundur um samskipti
Glærur af fundinum má nálgast hér: fraedslufundur-i-sunnulaekjarskola-14112016
Kakófundur um samskipti Lesa Meira>>





