Hermann

Heilsa og næring

Valhópurinn á unglingastigi sem er að læra um heilsu og næringu fór í heimsókn í KraftBrennzluna í síðasta tíma.  Ási í KraftBrennzlunni tók á móti þeim, sýndi og sagði frá og síðan fengu nemendur að spreyta sig. Allir höfðu ánægju af heimsókninni og komu heim fróðari um heilsurækt.

Heilsa og næring Lesa Meira>>

Litlu jólin

Litlu jólin í Sunnulækjarskóla verða föstudaginn 19. desember.  Eins og áður verður jólaskemmtuninni tvískipt og munu eldri nemendur sækja yngri nemendur og fylgja þeim að jólatrénu. Þannig munu nemendur í 1., 4., 5., 6., 9. og 10. bekk halda sína jólaskemmtun kl. 9:10 – 10:45 og nemendur 2., 3., 7. og 8. bekk kl. 11:00

Litlu jólin Lesa Meira>>

Rithöfundar í 7. bekk

Í haust sömdu nemendur í 7. bekk barnabækur í íslenskunámi sínu.  Þeir sköpuðu ævintýrapersónu og skrifuðu svo bók um hana. Við upphaf vinnunnar þurftu nemendur að ákveða hvaða aldri bókin ætti að hæfa og þegar hún var svo tilbúin fengu þau að fara í heimsókn í leikskóla til að lesa bækurnar sínar upp fyrir viðkomandi

Rithöfundar í 7. bekk Lesa Meira>>

Það er G

Það er G, heyrðust börnin í 2. bekk Sunnulækjarskóla hrópa einum rómi þegar fjórði jólaglugginn í jólastafaleik Árborgar var opnaður kl. 10:00 í morgun, 4. desember. Það eru nemendur í Setrinu sem bera veg og vanda af að útbúa fjórða jólagluggann í jólastafaleik sveitarfélagsins og opna hann á réttum tíma.  Gluggann skreytir meðal annars hún Grýla

Það er G Lesa Meira>>

Sunnulækjarskóli í jólabúninginn

Í dag var skreytingadagur í Sunnulækjarskóla.  Þann dag er jólaskrautið dregið fram og skólinn skreyttur hátt og lágt.  Dagurinn hófst með söngstund.  Allir nemendur skólans safnast þá saman í tröllatröppunum og syngja saman nokkur lög.  Í morgun var skemmtileg viðbót við söngstundina þegar nýstofnuð skólahljómsveit steig á svið og spilaði tvö jólalög undir stjórn kennara

Sunnulækjarskóli í jólabúninginn Lesa Meira>>

Laus störf

Starfsmann vantar í 50% stöðu við Hóla, skóladagvistun Sunnulækjarskóla. Starfið hentar jafnt körlum sem konum. Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2014 Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðilum sendist Birgi Edwald, skólastjóra, birgir@sunnulaek.is eða Sunnulækjarskóli, Norðurhólum 1, 800 Selfoss. Skólastjóri   Staða kennara

Laus störf Lesa Meira>>