Súpufundur í Sunnulækjarskóla
Súpufundur í Sunnulækjarskóla Lesa Meira>>
Um 160 manns mættu á fræðslufund í Sunnulækjarskóla í gærkvöldi. Á fundinum fjallaði Þorsteinn Hjartarson, fræðslustjóri um skólaþjónustu Árborgar og að því loknu fjallaði Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor við Háskóla Íslands um vináttu barna og unglinga. Fundurinn var afar vel heppnaður og erindin áhugaverð og skemmtileg. Við þökkum góða mætingu.
Frábær þátttaka á súpufundi Lesa Meira>>
Vegna haustþings kennara á Suðurlandi verður starfsdagur í Sunnulækjarskóla föstudaginn 3. október n.k. og því mæta nemendur ekki til skóla þann dag. Þingið hefst e.h. fimmtudaginn 2. október og því lýkur kennslu þann dag sem hér segir: 1. – 4. bekkur: kennslu lýkur samkvæmt stundaskrá, engin breyting. 5. – 7. bekkur: kennslu lýkur kl 13:00
Starfsdagur 3. október Lesa Meira>>
Þessa dagana hafa umsjónarkennarar Sunnulækjarskóla haldið kynningafundi fyrir foreldra. Okkur þótti fyrirkomulag kynningafunda undanfarinna ára vera orðið nokkuð staðnað og reyndum því að breyta svolítið til þetta árið. Margt var gert til að létta fundina og gera þá áhugaverðari. Til dæmis höfum við aukið þátttöku nemenda í fundunum, í sumum tilfellum falið þeim að kynna
Innkaupalistar árganga. Innkaupalisti 2. bekkjar Innkaupalisti 3. bekkjar Innkaupalisti 4. bekkjar Innkaupalisti 5 bekkur Innkaupalisti 6.bekkur Innkaupalisti 7.bekkur Innkaupalisti 8. – 10. bekkur
Umsjónarkennarar í 7. bekk fengu Estelle Marie Burgel, móðir nemenda í skólanum, til að koma og kynna Frakkland fyrir nemendum sínum, sögu þess og menningu. Þetta er í tengslum við námið í samfélagsfræði. Nemendur voru mjög áhugasamir og duglegir að spyrja um viðfangsefnið.
Frakklandskynning hjá 7. bekk Lesa Meira>>
Skólastarfið er nú hafið á fullum krafti eftir sumarfrí, börnin fara í útileikfimi fram að miðjum september. Það voru hressir krakkar í 4. AGS sem skemmtu sér vel í leikjum í íþróttatíma í síðustu viku, svo gaman saman.
Skólastarfið komið á fullt Lesa Meira>>
Hér að neðan er má nálgast glærur með upplýsingum um innritun í framhaldsskóla vorið 2014 og ýmsar almennar upplýsingar um framhaldsnám á Íslandi. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur tekið þetta efni saman. Foreldrakynning 2013-2014
Upplýsingar um innritun í framhaldsskóla Lesa Meira>>
Kynningarmyndbönd um nám og störf fyrir nemendur og foreldra Þessa dagana standa nemendur í 10. bekk frammi fyrir því að velja sér nám næsta vetur. Það er margt í boði og því mikilvægt fyrir nemendur ásamt foreldrum að kynna sér námsframboð vel. Mennta- og menningarmálaráðuneytið ásamt Samiðn hafa látið útbúa fjögur stutt myndbönd um
Kynningarmyndbönd um nám og störf Lesa Meira>>
Hér er hægt að skoða gagnvirka kynningu á námsframboði allra framhaldsskóla á Íslandi. Skólunum er raðað eftir landshlutum, skólum á höfuðborgarsvæðinu fremst en Suðurlandi síðast. (Ýta þarf á F5 eftir að skjalið opnast) Framhaldsskólakynning-2013-2014 Athygli er vakin á að hægt er að smella á allan rauðgulan texta og fá frekari upplýsingar um inntökuskilyrði og námsbrautir
Kynning á námsframboði framhaldsskóla Lesa Meira>>