Fréttir

Bjart er yfir Betlehem…

Ljúfur englasöngur hljómaði um sali og göng Sunnulækjarskóla í morgun þegar 4. bekkur bauð foreldrum til forsýningar á Helgileik 2012.  Á hverju ári sjá nemendur og kennarar í 4. bekk um að setja upp og sýna helgileikinn þar sem segir frá fæðingu Jesú. Leiksýningin er sýnd í upphafi Litlu jólanna sem verða á morgun fimmtudaginn

Bjart er yfir Betlehem… Lesa Meira>>

Smákökubakstur í Sunnulækjarskóla

Það er árlegur viðburður að nemendur í 8.-10. bekk skólans mæta utan skólatíma og baka smákökur undir stjórn heimilisfræðikennara með aðstoð sjálfboðaliða úr hópi foreldra.  Afrakstur bakstursins er svo gefinn víðsvegar um bæinn.  Í ár fóru nemendur og færðu heimilisfólki í Vinaminni og Grænumörk smákökur.  Nemendur fóru einnig í Selfosskirkju og færðu kirkjunni smákökur sem

Smákökubakstur í Sunnulækjarskóla Lesa Meira>>

Opinn samráðs- og stefnumótunarfundur um nýja skólastefnu Árborgar

  Opinn samráðs- og stefnumótunarfundur um nýja skólastefnu Árborgar verður haldinn í Sunnulækjarskóla miðvikudaginn 28. nóvember 2012 kl. 17-18:30. Í upphafi fundar verður stutt kynning á drögum að nýrri skólastefnu og síðan unnið í umræðuhópum með þau leiðarljós og markmið sem þegar hafa verið sett fram. Einnig verður efni frá hugarflugsfundum foreldra- og skólaráða og

Opinn samráðs- og stefnumótunarfundur um nýja skólastefnu Árborgar Lesa Meira>>