Fréttasafn

Fréttir frá Sunnulækjarskóla

Frá Fischersetri

12. febrúar 2015

Fréttatilkyning frá Fischersetri

Heilsa og næring

12. febrúar 2015

Valhópurinn á unglingastigi sem er að læra um heilsu og næringu fór í heimsókn í KraftBrennzluna í síðasta tíma.  Ási í KraftBrennzlunni tók á móti þeim, sýndi og sagði frá og síðan fengu nemendur að spreyta sig. Allir höfðu ánægju af heimsókninni […]

Skyndihjálparfræðsla í Sunnulækjarskóla

30. janúar 2015

Þessa viku hefur kynningarátak Rauða krossins í skyndihjálp staðið yfir í Sunnulækjarskóla.  Það er Anna Margrét Magnúsdóttir, hjúkrunarfræðingur sem hefur komið í heimsókn í hvern árgang og leiðbeint um undirstöðuatriði skyndihjálpar. Meðfylgjandi myndir eru af heimsókn Margrétar í 4. bekk.

Ávaxtapinnar í 1. bekk

15. janúar 2015

Það ríkti mikil gleði og áhugi skein úr hverju andliti þegar börnin í 1. bekk útbjuggu ávextapinna í heimilsfræðitímanum sínum.

Litlu jólin

1. janúar 2015

Litlu jólin í Sunnulækjarskóla verða föstudaginn 19. desember.  Eins og áður verður jólaskemmtuninni tvískipt og munu eldri nemendur sækja yngri nemendur og fylgja þeim að jólatrénu. Þannig munu nemendur í 1., 4., 5., 6., 9. og 10. bekk halda sína […]

Breyttur útivistartími

30. desember 2014

  Saman-hópurinn_foreldrar_útivist  

Netfréttabréf Forvarnateymis Árborgar

28. desember 2014

netfréttabréf – október 2014

Rithöfundar í 7. bekk

15. desember 2014

Í haust sömdu nemendur í 7. bekk barnabækur í íslenskunámi sínu.  Þeir sköpuðu ævintýrapersónu og skrifuðu svo bók um hana. Við upphaf vinnunnar þurftu nemendur að ákveða hvaða aldri bókin ætti að hæfa og þegar hún var svo tilbúin fengu […]

Það er G

4. desember 2014

Það er G, heyrðust börnin í 2. bekk Sunnulækjarskóla hrópa einum rómi þegar fjórði jólaglugginn í jólastafaleik Árborgar var opnaður kl. 10:00 í morgun, 4. desember. Það eru nemendur í Setrinu sem bera veg og vanda af að útbúa fjórða […]

Sunnulækjarskóli í jólabúninginn

28. nóvember 2014

Í dag var skreytingadagur í Sunnulækjarskóla.  Þann dag er jólaskrautið dregið fram og skólinn skreyttur hátt og lágt.  Dagurinn hófst með söngstund.  Allir nemendur skólans safnast þá saman í tröllatröppunum og syngja saman nokkur lög.  Í morgun var skemmtileg viðbót […]

Laus störf

20. nóvember 2014

Starfsmann vantar í 50% stöðu við Hóla, skóladagvistun Sunnulækjarskóla. Starfið hentar jafnt körlum sem konum. Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2014 Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðilum […]

Heimsókn eldri borgara í 7. bekkina

18. nóvember 2014

Nemendur í 7. bekk hafa verið að fræðast um Evrópu og seinni heimsstyrjöldina.  Að því tilefni fengum við heimsókn frá eldri borgurum sem sögðu frá reynslu sinni af seinni heimsstyrjöldinni.