Fréttasafn

Fréttir frá Sunnulækjarskóla

Samstarfsverkefnið FSunnó

18. apríl 2024

Í vetur hafa nemendur við Fjölbrautaskóla Suðurlands og Sunnulækjarskóla unnið samstarfsverkefni sem kallast FSunnó. Hekla Þöll Stefánsdóttir kennari við Fsu hefur leitt verkefnið í samstarfi við kennara 10. bekkjar  í Sunnulækjarskóla. Á heimasíðu Fsu er fjallað nánar um verkefnið sem […]

Skólahreysti

18. apríl 2024

Í dag keppir Sunnulækjarskóli í skólahreysti  og við hvetjum alla til að fylgjast með í beinni útsendingu á RUV sem er í þann mund að hefjast. Keppnislið skólans skipa þau Sara Mist, Valdimar, Sesselja Þyrí, Mattías Jökull, Jakob og Vigdís. […]

Þemadagar

12. apríl 2024

Dagana 10. til 12. apríl voru skemmtilegir þemadagar haldnir í Sunnulækjarskóla. Þemað að þessu sinni voru heimsálfunar og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna fléttuð inn í þá vinnu. Vinarbekkir unnu saman á þemadögum. Skemmtilegir, skapandi og fræðandi dagar í skólanum okkar.

Stærðfræðiþrautakeppni í 8. og 9. bekk á alþjóðlega stærðfræðideginum 14. mars sl.

20. mars 2024

Fimmtudaginn 14.mars var alþjóðlegi stærðfræðidagurinn og kemur það til vegna þess að hann tengist tölunni Pí sem er 3.14. Í tilefni dagsins tóku nemendur í 8. og 9. bekk þátt í stærðfræðiþrautakeppni þar sem reyndi á allskyns hæfni á sviði […]

Samfélagslögreglan og farsælt samfélag – Súpufundur 19. mars nk. í Stekkjarskóla

15. mars 2024

Forvarnarteymi Árborgar í samstarfi við Lögregluna á Suðurlandi og Fjölskyldusvið Árborgar býður til súpufundar þriðjudaginn 19.mars kl. 19:00 í Stekkjaskóla. Þema fundarins er velferð og farsæld í nútímasamfélagi. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að hafa velferð og farsæld barna […]

Nemendur 1. bekkjar í grunnskólum Árborgar fengu gefins bók sem heitir Vertu þú.

28. febrúar 2024

Nemendur 1. bekkjar í grunnskólum Árborgar fengu gefins bók sem heitir Vertu þú. Bókin Vertu þú! segir litríkar sögur af fjölbreytileikanum og hvetur til fordómaleysis og víðsýni. Höfundar bókarinnar eru Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir.  

Hinsegin vika í Árborg

26. febrúar 2024

Vikuna 26. febrúar – 1. mars fer fram hinsegin vika í Árborg. Þema vikunnar er fræðsla og sýnileiki. Það verður ýmislegt á döfinni þessa vikuna þar sem stofnanir og fyrirtæki sveitarfélagsins eru hvött til að taka þátt með ýmsum hætti. […]

Stóra upplestarkeppnin

16. febrúar 2024

Fimmtudaginn 15.febrúar var haldin bekkjarkeppni í Stóru upplestrarkeppninni í Sunnulækjarskóla.  Tólf nemendur komust áfram í undanúrslit sem verður 27.febrúar þar sem valdir verða fjórir fulltrúar frá Sunnulækjarskóla til að keppa í lokakeppninni sem verður haldin 12.mars í Vallaskóla. Sigurvegarar úr bekkjarkeppnunum […]

Öskudagur miðvikudaginn 14. febrúar

13. febrúar 2024

Að venju verður mikið líf og fjör hjá okkur á öskudaginn. Við hvetjum nemendur og starfsmenn til að mæta í búning og gera sér glaðan dag. Sund fellur niður og skóla lýkur kl. 13:00. Skólaakstur tekur mið af breyttum tíma. […]

Innritun í grunnskóla skólaárið 2024 – 2025

6. febrúar 2024

Innritun barna sem eru fædd árið 2018 og eiga að hefja skólagöngu í Sveitarfélaginu Árborg haustið 2024 fer fram á Mín Árborg til 20. febrúar næstkomandi. Reglur um skólahverfi, innritun og umsóknir í grunnskóla Árborgar má finna hér á heimasíðu […]

Starfsdagur og foreldraviðtöl

31. janúar 2024

Kæru foreldrar og forráðamenn. Á morgun, fimmtudaginn 1. febrúar er starfsdagur og undirbúningur kennara í skólanum. Nemendur mæta því ekki í skólann á morgun. Á föstudaginn 2. febrúar eru foreldraviðtöl hjá okkur og þá mæta nemendur með foreldrum í skólann. […]

Veðurspá – Skólastarf og akstursþjónusta

31. janúar 2024

Í ljósi veðurspár hefur verið ákveðið samstarfi við aksturþjónustu GT að skólabílar keyri nemendur heim kl. 12:00 sem búa utan þéttbýlis. Skólastarf verður óbreytt en foreldrar yngstu barna skólans meta það sjálfir hvort ástæða sé til að sækja þau fyrr […]