Fréttasafn
Fréttir frá Sunnulækjarskóla
Íþróttakennara vantar til afleysinga
Vegna fæðingarorlofs vantar íþróttakennara til að kenna íþróttir og sund við skólann frá 15. ágúst til 15. nóvember 2011.
Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við skólastjóra í síma 861-1737 eða í tölvupósti birgir@sunnulaek.is
Birgir Edwald,
skólastjóri
Úttekt mennta- og menningarmálaráðuneytisins
Skýrsla um úttekt á starfsemi Sunnulækjarskóla sem
Attentus, mannauður og ráðgjöf unnu fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið er komin út.
Úttektin er gerð á grundvelli 38. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla. Lagt var mat á stjórnun, skipulag kennslu, innra mat, námskröfur og fyrirkomulag námsmats. Niðurstöður skólans á samræmdum könnunarprófum voru skoðaðar svo og hvernig skólinn nýtir þær. Úttektin beindist jafnframt að mati á og eftirliti sveitarfélagsins með skólastarfinu og hvernig það nýtist skólanum.
Skýrsluna má lesa á vef skólans með því að smella hér!
Uppskeruhátíð og markaður
8. bekkur í Sunnulækjarskóla efndi til götumarkaðar og myndlistasýningar þann 17. maí .
Í tilefni markaðarins voru nemendur einnig með opið kaffihús.
Í vetur hafa nemendur unnið að nýsköpunarverkefni í textíl og smíði þar sem þeir kynnast ferlinu frá hugmynd að framleiðslu vöru.
Verkefninu lauk síðan með uppskeruhátíð þar sem vörurnar voru boðnar til sölu. Markaðurinn tókst einstaklega vel og vakti mikla ánægju nemenda, foreldra og annarra gesta.
Heimilsfræðival
Í byrjun maí fóru nemendur í heimilsfræðivali í Sunnulækjarskóla í heimsókn í Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Guðríður Egilsdóttir, kennari í FSu tók á móti þeim í útkennslustofunni þeirra.
Nemendurnir grilluðum brauð og hituðu kakó og fræddust um ýmislegt varðandi útieldun.
Allir voru nemendurnir ánægðir með heimsóknina og hlakka til að hefja nám við FSu.
Bókaverðlaun barnanna 2011
Nöfn þriggja nemenda sem tóku þátt í vali á vinsælustu bókinni 2011 voru dregin út úr þátttökumiðum sem söfnuðust saman hér á bókasafninu.
Sigríður Matthíasdóttir kom frá Bókasafni Árborgar og afhenti þeim bókaverðlaun fyrir þátttökuna.
Fræðslufundur um tölvufíkn
Er barnið þitt flutt að heiman og inn til tölvunnar!
Foreldrafræðsla um tölvufíkn – opinn fundur í Fjallasal í Sunnulækjarskóla mánudaginn 9. maí kl. 19.30-20.45. – Molasopi í hléi.
Hjálmar á alla í 1. bekk
Kiwanisklúbburinn Búrfell kom og færði öllum 1. bekkingum skólans reiðhjólahjálma að gjöf. Þetta er í 15. sinn sem Kiwanisklúbburinn stendur fyrir slíku verkefni. Eimskip hf. stendur að öllum kostnaði og sér um innflutning hjámanna.
Við þökkum kiwanisklúbbnum Búrfelli og Eimskip góða gjöf.
Valblöð komin á vefinn
Valblöð og upplýsingar um val í 8. -10. bekk næsta vetur má finna undir: Upplýsingar | Val í 8. – 10. bekk
Lesa Meira >>Vorskóli fyrir nýnema
Undanfarna þrjá skóladaga hafa væntanlegir nýnemar við Sunnulækjarskóla verið að kynna sér skólann.
Föstudaginn 8. apríl komu þeir og hittu skólastjórnendur og skoðuðu húsakynnin og aðstöðuna sem þeim verður búin. Mánudag og þriðjudag komu þeir svo og hittu kennara og unnu ýmis verkefni sem tengjast væntanlegri skólagöngu næsta haust.
Við bjóðum nýnemana velkomna í Sunnulækjarskóla.
Stærðfræðikeppni grunnskóla á Suðurlandi
Verðlaunaafhending í Stærðfræðikeppni grunnskóla á Suðurlandi fór fram föstudaginn 25. mars sl. á Skólaskrifstofu Suðurlands.
Sjö keppendur tóku þátt fyrir hönd Sunnulækjarskóla og náið einn af fulltrúum 9. bekkjar verðlaunasæti.
Það var Guðbjörg Hrönn Tyrfingsdóttir sem hreppti 2. sætið í flokki níundu bekkinga.
Við óskum Guðbjörgu til hamingju með árangurinn.
Lesa Meira >>