Stóra upplestarkeppnin
Fimmtudaginn 15.febrúar var haldin bekkjarkeppni í Stóru upplestrarkeppninni í Sunnulækjarskóla. Tólf nemendur komust áfram í undanúrslit sem verður 27.febrúar þar sem valdir verða fjórir fulltrúar frá Sunnulækjarskóla til að keppa í lokakeppninni sem verður haldin 12.mars í Vallaskóla. Sigurvegarar úr bekkjarkeppnunum eru: Ásta Kristín Ólafsdóttir, Bára Ingibjörg Leifsdóttir, Bergþóra Hauksdóttir, Birgir Árni Sigmundsson, Brynjar Bogi Halldórsson, […]
Öskudagur miðvikudaginn 14. febrúar
Að venju verður mikið líf og fjör hjá okkur á öskudaginn. Við hvetjum nemendur og starfsmenn til að mæta í búning og gera sér glaðan dag. Sund fellur niður og skóla lýkur kl. 13:00. Skólaakstur tekur mið af breyttum tíma. Kveðja, starfsfólk Sunnulækjarskóla
Innritun í grunnskóla skólaárið 2024 – 2025
Innritun barna sem eru fædd árið 2018 og eiga að hefja skólagöngu í Sveitarfélaginu Árborg haustið 2024 fer fram á Mín Árborg til 20. febrúar næstkomandi. Reglur um skólahverfi, innritun og umsóknir í grunnskóla Árborgar má finna hér á heimasíðu Árborgar
Starfsdagur og foreldraviðtöl
Kæru foreldrar og forráðamenn. Á morgun, fimmtudaginn 1. febrúar er starfsdagur og undirbúningur kennara í skólanum. Nemendur mæta því ekki í skólann á morgun. Á föstudaginn 2. febrúar eru foreldraviðtöl hjá okkur og þá mæta nemendur með foreldrum í skólann. Hefðbundið skólastarf hefst svo að nýju mánudaginn 5. febrúar Kveðja, Starfsfólk Sunnulækjarskóla
Veðurspá – Skólastarf og akstursþjónusta
Í ljósi veðurspár hefur verið ákveðið samstarfi við aksturþjónustu GT að skólabílar keyri nemendur heim kl. 12:00 sem búa utan þéttbýlis. Skólastarf verður óbreytt en foreldrar yngstu barna skólans meta það sjálfir hvort ástæða sé til að sækja þau fyrr ef veður versnar skyndilega.