Fréttir

Kynning á Taekwondo í Sunnulækjarskóla

Vikuna 24.-30. september fengu nemendur Sunnulækjarskóla skemmtilega heimsókn. Landsliðmaðurinn og yfirþjálfari taekwondo deildarinnar á Selfossi, Daníel Jens Pétursson heimsótti alla árganga og kynnti fyrir þeim Taekwondoíþróttina.  Daníel kom í íþróttatíma og sýndi nemendum grunnatriðin í íþróttinni sem hentar fyrir allan aldur. Framtakið mæltist vel fyrir og skemmtu börnin sér vel.

Kynning á Taekwondo í Sunnulækjarskóla Lesa Meira>>

Nýtt útieldhús við Sunnulækjarskóla

Í síðustu viku tókum við í notkun nýtt útikennslueldhús við skólann.  Fyrir eigum við eldunaráhöld sem foreldrafélagaið gaf skólanum og eldunarþrífót með steikarpönnu.  Nú hafa bæst við tvö vönduð eldstæði sem komið hefur verið fyrir, framan við heimilsfræðistofuna. Vegna nálægðar eldstæðanna við heimilsfræðistofuna er mjög hægt um vik að flétta notkun þeirra inn í heimilsfræðikennsluna. 

Nýtt útieldhús við Sunnulækjarskóla Lesa Meira>>

Samræmd próf hjá 10., 7., og 4. bekk  vikuna 23. – 27. september. Nemendur í 10. bekk þreyta próf í íslensku, ensku og stærðfræði dagana 23.- 25. september.  Nemendur mæta í skólann kl 8:30. Prófin hefjast stundvíslega kl 9:00 og lýkur kl 12:00. Prófin hjá 10. bekk: Mánudagur 23.09.          – íslenska Þriðjudagur 24.09.          –

Lesa Meira>>

Kynningafundir árganga

Kynningafundir hjá 1. – 7. bekk verða á eftirtöldum tímum   1. bekkur            þriðjudaginn 17. september kl 17:00 – 18:00 2. bekkur            miðvikudaginn 11. september kl. 17:30 3. bekkur            þriðjudaginn 17. september kl. 10:30 4. bekkur            miðvikudaginn 11. september kl. 17:00 5. bekkur            miðvikudaginn 18. september kl. 18 6. bekkur            þriðjudaginn 17. september 6. GSK

Kynningafundir árganga Lesa Meira>>

Fræðslufundur Heimils og skóla

 Fræðslufundur um nýja aðalnámskrá á Selfossi Ný aðalnámskráin boðar talsverðar breytingar og uppstokkun á starfsháttum og inntaki náms á Íslandi. Af þeim sökum standa Heimili og skóli fyrir kynningarfundum víðs vegar um landið árið 2013 þar sem foreldrum er boðið að koma og fræðast um nýja námskrá. Á kynningunum verður farið í eftirfarandi atriði:  •            

Fræðslufundur Heimils og skóla Lesa Meira>>

Fræðslufundur um nýja aðalnámskrá á Selfossi

Ný aðalnámskráin boðar talsverðar breytingar og uppstokkun á starfsháttum og inntaki náms á Íslandi. Af þeim sökum standa Heimili og skóli fyrir kynningarfundum víðs vegar um landið árið 2013 þar sem foreldrum er boðið að koma og fræðast um nýja námskrá. Á kynningunum verður farið í eftirfarandi atriði:  •             Grunnþættir menntunar               •             Ný og fjölbreytt

Fræðslufundur um nýja aðalnámskrá á Selfossi Lesa Meira>>