Fréttasafn
Fréttir frá Sunnulækjarskóla
Einar Kárason í heimsókn
Nemendur í 10. bekk fengu Einar Kárason rithöfund í heimsókn í dag. Einar skrifaði bókina Djöflaeyjan sem nemendur eru að lesa þessa dagana. Hann sagði frá tilurð sögunnar, af hverju áhugi hans kviknaði á þessu efni og hvernig bókin […]
Starfsdagur og haustfrí
Vegna haustþings kennara á Suðurlandi verður starfsdagur í Sunnulækjarskóla föstudaginn 5. október n.k. og því mæta nemendur ekki til skóla þann dag. Frístundaheimilil Hólar er opið þann dag fyrir þá sem þar eru skráðir. Þó þarf að skrá þennan dag […]
Skákkennsla grunnskólabarna
Frá skáknámsskeiði í Fischersetri Fischersetrið á Selfossi mun í samstarfi við Sveitarfélagið Árborg og Skákskóla Íslands standa fyrir skákkennslu fyrir grunnskólabörn í Fischersetrinu á laugardögum frá kl. 11.00–12.30. Yfirumsjón með kennslunni hefur Helgi Ólafsson, stórmeistari og skólastjóri Skákskóla Íslands. Alls […]
Gengið í Reykjadal
Nemendur í 10. bekk ásamt kennurum og nokkrum foreldrum skelltu sér í göngu í Reykjadal þriðjudaginn 18. september. Tilgangur ferðarinnar var að efla tengsl innan hópsins og leyfa nemendum að kynnast utan skólans. Framundan er spennandi og fjölbreyttur vetur hjá […]
12. sept. Fyrirlestur um einhverfu
Vakin er athygli á fyrirlestri um einhverfu sem haldinn verður í Fjallasal Sunnulækjarskóla næstkomandi miðvikudag 12. september kl. 17:00 – 19:00. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina „Vanvirkni í einhverfu“. Ásdís Bergþórsdóttir, forritari og sálfræðingur, kemur og fræðir okkur um Vanvirkni í einhverfu […]
Ólympíuhlaup Sunnulækjarskóla
Þriðjudaginn 11. september hlupu nemendur Sunnulækjarskóla Ólympíuhlaup ÍSÍ. Forveri þess er Norræna skólahlaupið sem hefur verið árlegur viðburður síðan 1984. Vegalengdin er misjöfn eftir aldri en 5.-10. bekkur geta valið um fjórar vegalengdir, 2,5 km, 5 km, 7,5 km […]
Skólasetning skólaárið 2018-2019
Skólasetning Sunnulækjarskóla skólaárið 2018 – 2019 verður miðvikudaginn 22. ágúst. Athöfnin verðu í þrennu lagi: Nemendur í 1.−4. bekk, f. 2009 – 2012, mæti kl 9:00. Nemendur í 5. – 7. bekk, f. 2006 – 2008, mæti kl. 10:00 Nemendur […]
Sunnuleikar
Sunnuleikarnir voru haldnir 4. júní í blíðskapaveðri. Þar voru krakkanir að spreyta sig í allskonar þrautum þar sem kennarar stóðu vaktina. Krakkarnir stóðu sig mjög vel og eftir leikana voru grillaðar pylsur og svo var verðlaunaafhending. Við viljum þakka öllum […]
Ævintýralestur
Á vordögum fór bókaútgáfan IÐNÚ af stað með lestrarátak sem var kallað „Ævintýralestur“. Þar var áhersla lögð á lestur á bókunum „Óvættaför“ og líka öðrum ævintýrabókum. Nemendur Sunnulækjarskóla voru nokkuð duglegir að taka þátt í átakinu. Einn nemandi varð hlutskarpastur […]
Vordagar, skólaslit og útskrift
Dagarnir 4. og 5. júní eru vordagar í Sunnulækjarskóla. Fyrri dagurinn er skipulagður sem sérstakur bekkja- eða árgangadagur þar sem kennarar skipuleggja göngu- eða hjólaferðir og annað álíka. Seinni daginn, 5. júní, verður “Litríki vordagurinn”. Sá dagur einkennist af samvinnu […]
Leiksýning og umferðarfræðsla hjá 10. bekk
10. bekkur fór á leiksýninguna Samninginn síðastliðinn fimmtudag í leikhúsinu við Sigtún. Sjálfstæði listhópurinn Smyrsl hefur ferðast með sýninguna undanfarna mánuði og hún fékk góðar viðtökur hjá nemendum og starfsmönnum Sunnulækjarskóla. Að lokinni sýningu tóku allir þátt í málstofu með […]
Hönnunarsamkeppni í Sunnulækjarskóla
Þriðjudaginn 22. maí fór fram hönnunarsamkeppni í Sunnulækjarskóla. Nemendur í 8. bekk hafa undanfarnar vikur verið að vinna verkefni í náttúrufræði þar sem þau þurftu að hanna bíl sem gekk fyrir rafmagni. Nemendur endurnýttu gömul raftæki, rifu þau í sundur […]
