Fréttasafn
Fréttir frá Sunnulækjarskóla
Bókagjöf
Nú í vikunni bárust Sunnulækjarskóla 40 pólskar bækur að gjöf frá sveitarfélaginu. Meðal bókanna leynast margs konar bækur, unglingaskáldsögur, skemmtilegar léttlestrarbækur og fræðibækur ásamt bókum um hinn sívinsæla Kidda Klaufa.Gjöfin kemur sér afar vel fyrir alla pólskumælandi nemendur skólans og […]
Skreytingadagur í Sunnulækjarskóla
Í dag var skólinn okkar færður í jólabúning. Verkefnið hófst með samsöng í Fjallasal þar sem yfir 700 nemendur og starfsmenn komu saman og sungu jólalög. Söngstundin var vinasöngstund en það þýðir að eldri vinir sækja yngri vini og sitja […]
Kakófundur foreldrafélagsins þriðjudaginn 27. nóvember
Þá er komið að árlegum kakófundi foreldrafélagsins þriðjudaginn 27. nóvember kl. 20:00 í Fjallasal . Hann ber yfirskriftina: Núvitund fyrir pabba og mömmur – og alla sem koma að uppeldi barna. Í þessu fræðsluerindi kynnir Bryndís Jóna frá Núvitundarsetrinu hvað […]
Skemmtilegir og fróðlegir þemadagar í 5. bekk
Dagana 12. – 16. nóvember voru þemadagar í 5. bekk þar sem unnin voru fjölbreytt verkefni sem öll tengdust lestri. Nemendur gerðu lestrarhvetjandi tré sem vex og dafnar við hverja bók sem þeir lesa. Kynntu sér rithöfunda og skrifuðu umfjöllun […]
Upplestur í Fjallasal
Í morgun kom Gunnar Helgason rithöfundur og leikari í heimsókn til okkar og las úr nýjustu bók sinni, Siggi sítróna. Upplesturinn var afar litríkur og nemendur nutu stundarinnar. Enginn vafi leikur á að upplestur Gunnars og framsögn er nemendum bæði […]
Söngstund í Sunnulækjarskóla
Í morgun hófu nemendur skólans daginn með vinasöngstund í Fjallsal. Eldri nemendur fóru þá og sóttu yngri vini sína og fylgdu þeim fram í Fjallasal þar sem sungin voru nokkur lög í tilefni af degi íslenskar tungu. Nemendur tóku hraustlega […]
Gjöf frá foreldrafélagi Sunnulækjarskóla
Í morgunsárið, fimmtudaginn 15. nóvember, komu fulltrúar foreldrafélags Sunnulækjarskóla færandi hendi í skólann okkar. Erindið var að færa öllum nemendum í 1. bekk endurskinsvesti. Lögreglan var með í för og aðstoðaði við afhendinguna. Allir voru glaðir með gjöfina og kunnum […]
Skemmtilegt í náttúrufræði
Það sem af er skólaárs hafa nemendur á unglingastigi brallað ýmislegt skemmtilegt í náttúrufræði. 8. bekkur er búinn að fara í vettvangsferð þar sem þau skoðuðu býflugnabú hjá býflugnabóndanum Svölu Sigurgeirsdóttur, þau hafa einnig greint plöntur, gróðursett og skoðað […]
Jól í skókassa
S.l. mánudag voru tenglarnir í 7. bekk með bekkjarkvöld þar sem nemendur og foreldrar hittust hér í skólanum og útbjuggu gjafir fyrir verkefnið „Jól í skókassa“ sem KFUM og KFUK heldur utan um. Á miðvikudeginum fórum við kennarar, stuðningsfulltrúar og nemendur saman […]
Starfsdagur og foreldradagur 5. og 6. nóv.
Þriðjudaginn 6. nóvember er foreldradagur í Sunnulækjarskóla. Þann dag mæta foreldrar með börnum sínum í viðtal. Foreldradagur að hausti er tileinkaður líðan nemenda og sjálfsmati gagnvart námi og félagslegri stöðu. Efni viðtalanna: Líðan nemandans og félagsleg staða, farið yfir það […]
Alþjóðlegi bangsadagurinn
Alþjóðlegi bangsadagurinn er 27. október ár hvert. Hann er haldinn hátíðlegur í fjölmörgum leik- og grunnskólum og á bókasöfnunum. Saga dagsins er á þá leið að Theodore (Teddy) Roosevelt fyrrum forseti Bandaríkjanna var eitt sinn á veiðum ásamt veiðifélögum sem allir […]
