Fréttasafn

Fréttir frá Sunnulækjarskóla

Laust starf við skólavistun

10. apríl 2014

Stuðningsfulltrúa vantar í 50% stöðu e.h. á Hóla, skólavistun Sunnulækjarskóla.    Starfið hentar jafnt körlum sem konum. Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.  Umsóknarfrestur er til 9. apríl 2014  Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og […]

Stóra upplestrarkeppnin

8. apríl 2014

Föstudaginn 4. apríl fór úrslitakeppni Stóru upplestrarkeppninnar á Suðurlandi fram í Þorlákshöfn. Mikill metnaður er lagður í keppnina og óhætt að segja að nemendur séu sífellt að mæta betur og betur undirbúnir.  Allir keppendur stóðu sig með prýði og voru skólum sínum til sóma.  Fyrir […]

Litla upplestrarkeppnin

1. apríl 2014

Í haust var ákveðið að setja Litlu upplestrarkeppnina fyrir 4. bekk af stað hér í Árborg og nærsveitarfélögum. Litla upplestrarkeppnin hófst í Hafnarfirði haustið 2010 og byggir á markmiðum Stóru upplestrarkeppninnar sem haldin er reglulega í 7. bekk. Meginmarkmið keppninnar […]

Sunnulækjarskóli á verðlaunapall

27. mars 2014

Í gær tók Sunnulækjarskóli þátt í skólahreysti í fimmta sinn.  Okkur hefur aldrei gengið eins vel og nú náði lið skólans besta árangri hingað til og hreppti  3. sæti í Suðurlandsriðlinum.  Krakkarnir stóðu sig frábærlega og voru sér og skólanum til […]

Vetrarfrí 20. og 21. mars

25. mars 2014

Vetrarfrí verður í Sunnulækjarskóla fimmtudag og föstudag í þessari viku, 20. og 21. mars.Allar deildir skólans, þar með talið skólavsitun og skrifstofa eru lokaðar í vetrarfríi.Skóli hefst að nýju samkvæmt stundaskrá mánudaginn 24. mars.  

Alltaf eitthvað óvænt og skemmtilegt

14. mars 2014

Í stórum skóla gerast margir skemmtilegir hlutir dag hvern.  Í dag var alveg sérstaklega skemmtilegt þegar nemendi í 2. bekk, Oliver Jan, bauð skólasystkinum sínum upp á óvænta básúnutónleika. Við þökkum Oliver fyrir hans framlag til að gera skólann okkar […]

Ferð 9. og 10. bekkja á Íslandsmót iðn- og verkgreina

14. mars 2014

Fimmtudaginn 6. mars s.l. fóru allir nemendur 9. og 10. bekkja í grunnskólum Árborgar á Íslandsmót iðn- og verkgreina sem haldið var í Kórnum í Kópavogi. Þar var margt um manninn og margt áhugavert að sjá og skoða. Flestir framhaldsskólar […]

Íslandsmót iðn- og verkgreina

7. mars 2014

  Dagana 6. – 8. mars fer fram Íslandsmót iðn- og verkgreina í Kórnum í Kópavogi. Íslandsmótinu er fyrst og fremst ætlað að kynna iðn- og verkgreinar fyrir ungu fólki og vekja athygli á þeim tækifærum sem felast í námi og […]

Öskudagur við Sunnulæk

6. mars 2014

Það var mikið fjör og mikið gaman á Öskudegi í Sunnulækjarskóla.  Dagurinn hófst með söngstund þar sem allir sungu saman nokkur lög.  Lokalagið var „Enga fordóma“.  Nemendur tóku mjög vel undir og fylgjast greinilega vel með. Síðar um daginn var […]

Kynning á framhaldsskólum í heimabyggð

28. febrúar 2014

Kynning á framhaldsskólum í heimabyggð verður haldin í Fjallasal fyrir forráðamenn og nemendur í 9. og 10. bekk í Sunnulækjarskóla, fimmtudaginn 27. febrúar kl. 18:00. Námsráðgjafar, sviðsstjórar og fulltrúar nemendafélaga Fjölbrautaskóla Suðurlands og Menntaskólans að Laugarvatni koma og kynna námsframboð […]

Fyrirlestur um netnotkun

28. febrúar 2014

Þriðjudaginn 25. febrúar næstkomandi stendur forvarnarteymi Árborgar, grunnskólarnir á Selfossi og foreldrafélög grunnskólanna fyrir fræðslufyrirlestri um internet- og nýmiðlanotkun í samstarfi við samtökin SAFT og Heimili og Skóla. Fyrirlesturinn verður í Fjallasal og hefst kl 20:00. Nánari upplýsingar má finna hér: […]

Stríðsárin í 7. bekk

28. febrúar 2014

 Í tilefni þess að verið er að fjalla um seinni heimsstyrjöldina í samfélagsfræði í 7. bekk voru eldri borgarar beðnir um aðstoð við fræðsluna.  Vel var brugðist við og mætti vaskur hópur til aðstoðar. Nemendur höfðu undirbúið spurningar fyrir gestina og […]