birgir

Innritun í grunnskóla skólaárið 2019−2020

Innritun barna sem eru fædd árið 2013 og eiga að hefja skólagöngu í Sveitarfélaginu Árborg haustið 2019 fer fram 20. febrúar−4. mars næstkomandi. Hægt er að innrita rafrænt í viðkomandi grunnskóla og frístundaheimili inni á Mín Árborg á arborg.is eða á eyðublöðum sem eru aðgengileg á heimasíðum grunnskólanna og í Ráðhúsinu. Þeim umsóknum á að …

Innritun í grunnskóla skólaárið 2019−2020 Lesa Meira>>

Starfsdagur og foreldradagur 4. og 5. febrúar

Mánudagurinn 4. febrúar og þriðjudagurinn 5. febrúar eru starfsdagur og foreldradagur í Sunnulækjarskóla. Þá daga mæta foreldrar með börnum sínum í viðtal. Foreldraviðtölin eru tileinkuð líðan nemenda, sjálfsmati gagnvart námi og félagslegri stöðu og farið yfir stöðu námsárangurs nemenda við annarskilin. Efni viðtalanna: Líðan nemandans og félagsleg staða, farið yfir það helsta sem kemur fram …

Starfsdagur og foreldradagur 4. og 5. febrúar Lesa Meira>>

Suðurlandsmeistarar í skák

Sunnulækjarskóli tók þátt í Suðurlandsmóti grunnskóla í skák sem fram fór í Fischer-setrinu hér á Selfossi föstudaginn 25. janúar. Keppt var í yngri (1.-5. bekk) og eldri flokki (6.-10. bekk). Sunnulækjarskóli sendi tvö lið í yngri flokki og eitt lið í eldri flokki á mótið. Öll liðin stóðu sig frábærlega og sigraði yngra lið a …

Suðurlandsmeistarar í skák Lesa Meira>>

Málað í snjóinn

Það voru falleg listaverk sem fyrsti bekkur gerði í myndmennt í góða veðrinu í dag. Nemendur nýttu fallega vetrarveðrið og máluðu listaverk í snjóinn eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.        

Þakkir til styktaraðila

 Sunnulækjarskóli þakkar öllum sem styrktu okkur á góðgerðardögunum sem voru haldnir 5. til 7. desember.Ágóði góðgerðadagana rennur til góðgerðamála í nærsamfélaginu. Á þessu ári urðu Björgunarfélag Árborgar fyrir valinu varð afrakstur Góðgerðadaganna 1,503,274 kr. Fulltrúar Björgunarfélags Árborgar mættu svo í Sunnulækjarskóla fimmtudaginn 13. des. og fengu peningagjöfina afhenta. Þetta væri þó ekki hægt án stuðnings …

Þakkir til styktaraðila Lesa Meira>>

Afrakstur góðgerðadaga

Í morgun, að lokinni söngstund, afhentu nemendur afrakstur góðgerðadaganna. Ákveðið var að þetta árið mundu nemendur styrkja Björgunarfélag Árborgar. Afrakstur góðgerðadaganna var 1.503.274 kr. og voru það stoltir nemendur sem afhentu fulltrúum Björgunarfélagssins fullan kassa af peningaseðlum. Við þökkum öllum sem að góðgerðadögunum komu, nemendum, starfsmönnum, styrktaraðilum og síðast en ekki síst foreldrum og aðstandendum …

Afrakstur góðgerðadaga Lesa Meira>>

Bókagjöf

Nú í vikunni bárust Sunnulækjarskóla 40 pólskar bækur að gjöf frá sveitarfélaginu. Meðal bókanna leynast margs konar bækur, unglingaskáldsögur, skemmtilegar léttlestrarbækur og fræðibækur ásamt bókum um hinn sívinsæla Kidda Klaufa.Gjöfin kemur sér afar vel fyrir alla pólskumælandi nemendur skólans og kunnum við sveitarfélaginu bestu þakkir fyrir.